Líf og fjör verður hjá nágrönnum okkar í Grindavík á réttardaginn 15.september ´07.
ÞórkötlustaðaréttirSmalað verður í afrétti Grindvíkinga, föstudaginn 14.
Andrea Rún Magnúsdóttir, nemandi í 6.bekk Stóru- Vogaskóla er einn af 52 þátttakendum úr 3.000 manna hópi sem komist hefur áfram með hugmynd sína í úrslit NKG 2007. Uppfinning hennar er einnota debetkort með skjá.Andreu býðst að mæta í Vinnusmiðju um helgina þar sem þátttakendur koma saman undir leiðsögn leiðbeinenda.
Nemendur í 1.bekk Stóru- Vogaskóla komu óvænt í heimsókn á bæjarskrifstofurnar í dag og funduðu með bæjarstjóra.Krakkarnir voru mjög áhugasamir um bæinn sinn og spurðu mikið.Á myndinni má sjá hluta hópsins ásamt Halldóru Bjarnadóttur kennara.
Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir umsjónarmanni Tjarnarsals
Markmið starfsins er að veita leigjendum salarins góða þjónustu við útleigu.
Í starfinu felst umsjón með Tjarnarsal og eldhúsi meðan hann er í útleigu.
HæfniskröfurLeitað er að sjálfstæðum og ábyrgum einstakling með ríka þjónustulund.
Vinnutími er aðallega um kvöld og helgar.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 424-6660, eða robert@vogar.is
Nú er tækifærið þitt e.t.v.komið til að fá að upplifa það
Okkur vantar nefnilega góða kennara og samstarfsfólk.Nú er laus deildarstjórastaða á eldri barna deild og einnig almennar kennarastöður.Hér er einstakt starfslið sem vinnur vel saman frábært starf. Við erum öll sammála um að það er mjög gaman að vinna hér, og það verður enn skemmtilegra þegar við fáum fleiri jákvæða og hressa aðila í hópinn.
Ef ekki fæst uppeldismenntað starfsfólk verða aðrar umsóknir teknar til umfjöllunar.
Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum Suðurgötu 1-5, eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga Iðndal 2.
Nánari upplýsingar veita Salvör Jóhannesdóttir skólastjóri og María Hermannsdóttir aðstoðarskólastjóri í símum 424-6817 og 893-4079.
Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 2.september kl.11 í boði Reykjanesbæjar og Ferðamálasamtaka Suðurnesja í samvinnu við sjf menningarmiðlun og FERLIR. Gengið frá Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ, Menntavegi 1 að Melabergi, Hvalsnesi.
Eins áður hefur komið fram hér á vefnum tóku nemendur í Vinnuskóla Voga þátt í ljósmyndasamkeppni í tilefni Evrópuársins 2007 – Árs jafnra tækifæra. Mynd þeirra Dagbjartar, Katrínar, Heiðu, Petru & Thelmu sem tóku þátt í hópakeppni, hlaut þriðju verðlaun.
Þær stöllur tóku þessa skemmtilegu mynd sem fylgir hér með og óskum við þeim til hamingju með glæsilegan árangur.