VEIST ÞÚ HVAÐ NEMENDUR HEILSULEIKSKÓLANS SUÐURVALLA ERU FRÁBÆRIR?

Nú er tækifærið þitt e.t.v. komið til að fá að upplifa það

Okkur vantar nefnilega góða kennara og samstarfsfólk.
Nú er laus deildarstjórastaða á eldri barna deild og einnig almennar kennarastöður.
Hér er einstakt starfslið sem vinnur vel saman frábært starf.  Við erum öll sammála um að það er mjög gaman að vinna hér, og  það verður enn skemmtilegra þegar við fáum fleiri jákvæða og hressa aðila í hópinn.

Ef ekki fæst uppeldismenntað starfsfólk verða aðrar umsóknir teknar til umfjöllunar.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum Suðurgötu 1-5, eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga  Iðndal 2.

Nánari upplýsingar veita Salvör Jóhannesdóttir skólastjóri og María Hermannsdóttir aðstoðarskólastjóri í símum 424-6817 og 893-4079.