Stóru-Vogaskóla
Tjarnargötu 2
190 Vogar
Opnunartímar bókasafnsins 2023-2024:
mánudaga kl. 8-13
þriðjudaga kl. 8-18
miðvikudaga kl. 8-18
fimmtudaga kl. 8-18
föstudaga kl. 8-13
laugardaga kl. 10-12
Athugið að bókasafnið getur verið lokað yfir sumartímann. Á Facebook síðu Lestrarfélagsins Baldurs (sjá tengil hér fyrir neðan) má alltaf finna rétta opnunartíma og upplýsingar um sumarlokun.
Starfsmaður bókasafns er:
Lauma Gulbe
Sími: 440 6289
Netfang: bokasafn@vogar.is
Lestrarfélagið Baldur á Facebook
Bókasafnið er til húsa í Stóru-Vogaskóla og hýsir skólabókasafnið og almenningsbókasafnið sem gengur undir nafninu Lestrarfélagið Baldur. Einnig er samstarf milli bókasafnsins og annarra almenningsbókasafna á Suðurnesjum. Þannig geta skírteinishafar fengið lánaðar bækur á bókasöfnum nágrannasveitarfélaganna á Suðurnesjum.
Safnkostur: íslenskar skáldsögur, þýddar skáldsögur, ævisögur, fræðirit ýmis konar, barnabækur, unglingabækur, handbækur, hljóðbækur, tímarit og teiknimyndasögur. Samtals á bókasafnið um það bil 13.000 safngögn.
Ef þú hefur áhuga á bókum eða tímaritum sem ekki eru á safninu, þá endilega láttu bókavörð vita!
Ágæt aðstaða er til lestrar á bókasafninu og er fólk hvatt til nýta sér þá aðstöðu. Starfsmaður bókasafnsins er fólki innan handar um að finna og velja bækur.
Hvernig virkar þetta?
Erum við með bókina sem þú vilt lesa?
Til að leita nákvæmlega í okkar bókasafni er þægilegast að nota þennan hlekk, https://vogar.leitir.is
Á vefnum www.leitir.is býðst aðgengi á einum stað að fjölbreyttum safnkosti bókasafna á Íslandi og efni valinna sérsafna. Kerfið veitir upplýsingar um safnkost og aðgang að rafrænu efni hvort sem um er að ræða texta eða myndrænt efni. Jafnframt eru rafrænar tímaritsgreinar og gagnagrunnar á hvar.is.
Eftir að hafa fengið lykilorð frá bókasafninu (við mælum með að lykilorði sé breytt eftir fyrstu innskráningu) eða með rafrænum skilríkjum eða Íslykli er hægt að skrá sig inn á www.leitir.is. Smellt er á Innskráning og valið Almenningsbókasöfn. Ef maður velur Notandanafn til að skrá sig inn er kennitalan slegin inn (án bandstriks) í reitinn Notandanafn og síðan lykilorðið í reitinn þar fyrir neðan. Svo er smellt á Innskrá og á Mínar síður.
Á Mínum síðum geta viðskiptavinir:
Eftir sem áður er viðskiptavinum velkomið að hringja í bókasafnið og spyrjast fyrir um stöðu sína eða fá lán framlengd. Síminn er 440 6289.
Önnur þjónusta (greitt er fyrir hana samkvæmt gjaldskrá):
Ljósrit og útprentun A4
Ljósrit og útprentun A3
Plöstun A3
Plöstun A4
Plöstun A5
Nokkrir gagnlegir tenglar:
www.leitir.is (upplýsingar um safnkost bókasafna á Íslandi og ýmissa sérsafna)
www.hvar.is (landsaðgangur að rafrænum tímaritum og gagnasöfnum)
www.timarit.is (tímarit og dagblöð frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi)
http://bokasafn.reykjanesbaer.is/default.aspx (Bókasafn Reykjanesbæjar)
www.landsbokasafn.is (Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn)
www.borgarbokasafn.is (Borgarbókasafn Reykjavíkur)
Bækur og greinar sem fjalla um sveitarfélagið.