Golfklúbbur Vatnsleysustrandar

Kálfatjarnarvöllur stendur við þjóðveg 421 Vatnsleysustrandarveg, nánar tiltekið við kirkjujörðina Kálfatjörn.

Þetta er glæsilegur níu holu golfvöllur með allri helstu þjónustu sem í boði er á sambærilegum völlum.

Öll aðstaða fyrir kylfinga er til fyrirmyndar og einnig er rekin veitingasala í golfskálanum sem opin er öllum sem leið eiga um svæðið. Unnið er að merkingum á svæðinu og verða þar tilgreindar mannvistarleifar og minjar frá fyrri árum og er þetta hluti af því að gera svæðið aðgengilegra ferðafólki. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar er einn fjölsóttasti ferðamannastaður í Vogum og nágrenni.

Símanúmer: 4246529

Netfang: gvsgolf@gmail.com

Heimasíða golfklúbbsins

Getum við bætt efni síðunnar?