AF STAÐ á Reykjanesið - Hvalsnesleið 6,5 km

Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 2. september kl. 11 í boði Reykjanesbæjar og Ferðamálasamtaka Suðurnesja í samvinnu við sjf menningarmiðlun og FERLIR.
 
Gengið frá Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ, Menntavegi 1 að Melabergi, Hvalsnesi. Gömul fallega vörðuð þjóðleið sem býr yfir mögnuðum sögum og fróðleik sem leiðsögumenn Reykjaness munu miðla á leiðinni. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Áætlað er að gangan taki  ca. 3-4 klst. með stoppum. Rútuferð til baka kr. 500. Frítt fyrir börn. Gott er að hafa með sér nesti og góða skó. Allir á eigin ábyrgð.
 
Gangan er fimmti hluti af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða á tímabilinu frá 5.ágúst – 2. sept. ´07. Boðið er upp á  þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 þjóðleiðir verður dregið úr seðlum og einhver heppinn fær góð gönguverðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.

Sigrún Jónsd. Franklín
sjf menningarmiðlun
sjf@internet.is/6918828