Úrslit ljósmyndasamkeppni Vinnuskólanna

Eins áður hefur komið fram hér á vefnum tóku nemendur í Vinnuskóla Voga þátt í ljósmyndasamkeppni í tilefni Evrópuársins 2007 – Árs jafnra tækifæra.  

Mynd þeirra Dagbjartar, Katrínar, Heiðu, Petru & Thelmu sem tóku þátt í hópakeppni, hlaut þriðju verðlaun. 

Þær stöllur tóku þessa skemmtilegu mynd sem fylgir hér með og óskum við þeim til hamingju með glæsilegan árangur. Vonandi verður þessi árangur þeim og öðrum til hvatningar við listsköpun sína.

Á vef félagsmálaráðuneytisins má sjá þær myndir sem hlutu verðlaun.

www.felagsmalaraduneyti.is