Opið hús í íþrótta- og tómstundamiðstöðinni

Nýja viðbyggingin við Íþrótta- og tómstundamiðstöðina verður opin fyrir gesti og gangandi næstkomandi miðvikudag frá kl 15.30-18.00. Gestum verður boðið upp á kaffi og kleinur.

Húsið er allt glæsilegasta og ljóst að aðstaða til íþrótta- og tómstundaiðkunar er orðin mjög góð í Sveitarfélaginu Vogum.