Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Fjárhagsáætlun afgreidd í bæjarstjórn

Fjárhagsáætlun afgreidd í bæjarstjórn

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2008 var samþykkt við seinni umræðu í bæjarstjórn þann 18.desember síðastliðinn.Fjárhagsáætlunin ber þessi merki að viðsnúningur er að verða á rekstri sveitarfélagsins.
Mikil íbúafjölgun í Vogum

Mikil íbúafjölgun í Vogum

Hagstofa Íslands hefur birt mannfjöldatölur miðað við 1.desember 2007.Íbúum í Vogum heldur áfram að fjölga og eru nú 1.225 og hefur fjölgað um 119, eða rúm 10% frá síðustu áramótum. Íbúar í Sveitarfélaginu Vogum eru í yngri kantinum, en rúmlega 400 börn eru á aldrinum 0- 18 ára.
Stofnfundur Suðurlinda ohf.

Stofnfundur Suðurlinda ohf.

Stofnfundur Suðurlinda ohf.var haldinn í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla í gær, en hluthafar í félaginu eru; Grindavíkurkaupstaður, Hafnarfjarðarkaupstaður og Sveitarfélagið Vogar.  Á fundinum voru staðfestar samþykktir fyrir félagið og kjörin 5 manna stjórn til eins árs.
Lækkun fasteignaskatta á næsta ári

Lækkun fasteignaskatta á næsta ári

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2008 var samþykkt ný gjaldskrá, ásamt álagningu skatta.Útsvarsprósentan verður óbreytt, eða 13,03%.
Íþróttamiðstöð lokuð 21. desember

Íþróttamiðstöð lokuð 21. desember

Íþróttamiðstöð Voga verður lokuð á morgun, föstudaginn 21.desember  milli kl.10 og 14 vegna jarðarfarar. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda þeim.
Jólahús Sveitarfélagsins Voga 2007

Jólahús Sveitarfélagsins Voga 2007

Brekkugata 4 var valin Jólahús Sveitarfélagsins Voga á fundi bæjarráðs þann 11.desember síðastliðinn.Á fundi bæjarstjórnar þann 18.
Félagsmiðstöðin í jólafrí

Félagsmiðstöðin í jólafrí

Félagsmiðstöðin Boran er komin í jólafrí til 7.janúar 2008. Við þökkum frábærar stundir á árinu sem er að líða. Starfsfólk Félagsmiðstöðvarinnar  .
Björgunarsveitin Skyggnir

Björgunarsveitin Skyggnir

Síðustu nætur hefur blásið meira en við verum vön hér í Vogum, enda alltaf lygnt og gott.Meðan við sofum eru Björgunarsveitarmenn á ferð um bæinn að gæta að fjúkandi hlutum og verja líf okkar og eignir.
Notum endurskinsmerki

Notum endurskinsmerki

Föstudaginn 7.desember kom forvarnarfulltrúi frá VÍS í Stóru- Vogaskóla og fór yfir umferðaröryggismál og fleira með nemendum.Forvarnarfulltrúinn átti gott samtal jafnt við nemendur á unglingastigi og yngri nemendur, og afhenti þeim endurskinsmerki.Nú í svartasta skammdeginu er mjög mikilvægt að ökumenn fari sér varlega og að gangandi vegfarendur séu með endurskinsmerki.Rétt er að vekja athygli á því að hámarkshraði við flestar götur í sveitarfélaginu eru 30 km.  .
Opnunartími Íþróttamiðstöðvarinnar um jól og áramót

Opnunartími Íþróttamiðstöðvarinnar um jól og áramót

Opið á Þorláksmessu frá kl,10 til 16:00 Á Aðfangadag og Gamlársdag er opið frá kl 10 – 11:30 Lokað:JóladagAnnan í jólum Nýársdag. Opið frá kl 6:00 til kl 22:30 eftirtalda daga20.