Mikil íbúafjölgun í Vogum

Hagstofa Íslands hefur birt mannfjöldatölur miðað við 1. desember 2007. Íbúum í Vogum heldur áfram að fjölga og eru nú 1.225 og hefur fjölgað um 119, eða rúm 10% frá síðustu áramótum.

Íbúar í Sveitarfélaginu Vogum eru í yngri kantinum, en rúmlega 400 börn eru á aldrinum 0- 18 ára.