Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess.
Átaksverkefni 2011 er beint að húsnæði sem er byggt fyrir 1945, áður en lágmarkskröfur til einangrunargilda (U-gilda) byggingarhluta voru settar í byggingarreglugerðir.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Orkuseturs www.orkusetur.is
Umsóknarfrestur er til 28.12.2011
Sjá alla auglýsinguna hér (pdf)
07. desember 2011