Jólaskemmtunin í Aragerði

Síðastliðinn sunnudag, 4. desember, voru jólaljósin á jólatrénu í Aragerði tendruð. Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju söng nokkur jólalög og séra Kjartan Jónsson flutti hugvekju. Nemendur í 1. bekk Stóru-Vogaskóla sungu einnig.

Margt var um manninn í Aragerði þennan fallega vetrardag, börn og foreldrar mættu með góða skapið með sér, sumir renndu sér á snjósleðum og aðrir biðu spenntir eftir jólasveinunum sem komu brunandi á svæðið með bíl Björgunarsveitarinnar Skyggnis með tilheyrandi látum. Síðan var sungið og dansað var í kringum jólatréð  og að lokum fengu börnin glaðning frá jólasveinunum.