Sunnudagurinn 4. desember í Vogum

Sunnudaginn 4. desember verður aðventumessa kl. 14:00 í Kálfatjarnarkirkju á Vatnleysuströnd.

Sama dag kl. 15:30 verða jólaljósin tendruð á jólatrénu í Aragerði. Séra Kjartan Jónsson flytur hugvekju og kirkjukórinn mun syngja nokkur jólalög.

Nemendur í 1. bekk syngja og heyrst hefur að einhverjir af þeim jólasveinabræðrum muni kíkja við og jafnvel með glaðning fyrir stillt börn í pokahorninu.

Jólakveðja         
frístunda- og menningarfulltrúi