Nýr bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga

Ásgeir Eiríksson rekstrarhagfræðingur og leiðsögumaður verður næsti bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Tuttugu umsóknir bárust um starfið.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga þakkar kærlega þeim sem sýndu starfinu áhuga en bæjarstjórn lagði til að gengið yrði til samninga við Ásgeir um starfið.

      Ásgeir Eiríksson