Íbúafundur fimmtudagskvöldið 8. desember

Fimmtudaginn 8. desember býður bæjarstjórn íbúum Sveitarfélagsins Voga til íbúafundar í Tjarnarsal klukkan 20:00.

Kynnt verður fjárhagsáætlun og umræður verða um hana.
Bæjarfulltrúar sitja fyrir svörum um málefni bæjarins.

Við vonumst til að sjá sem flesta.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga