Frístunda- og menningarnefnd Voga óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2011 í Vogum.
Auk íþróttafélaga í sveitarfélaginu er einstaklingum heimilt að tilnefna íþróttamann.
Í reglugerð um íþróttamann ársins segir m.a.:
Tilnefndur íþróttamaður þarf að vera í félagi innan Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og vera búsettur í Sveitarfélaginu Vogum. Íþróttamaður þarf einnig að vera 12 ára eða eldri.
Tilnefningar óskast sendar, ásamt rökstuðningi, á netfangið skrifstofa@vogar.is í síðasta lagi laugardaginn 31. desember 2011.
Frístunda- og menningarnefnd