Styrkur til bættrar einangrunar

Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess.

Átaksverkefni 2011 er beint að húsnæði sem er byggt fyrir 1945, áður en lágmarkskröfur til einangrunargilda
(U-gilda) byggingarhluta voru settar í byggingarreglugerðir.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Orkuseturs www.orkusetur.is

Umsóknarfrestur er til 28.12.2011

Sjá alla auglýsinguna hér (pdf)