Fjölskyldudagsgolfmót Sv.Voga og Golfklúbbs Vatnsleysustrandar.Skráning í golfskála í síma 424-6529 eða á netfangið golfskali@simnet.is.
Kassabílarallý, keppt er í tveimur flokkum 10 ára og yngri / 11 ára og eldri.
Bætt hefur verið við leikjanámskeiði vikuna 19.- 22.ágúst.4 daga námskeið kostar 6720 kr, hádegismatur innifalinn.Krakkarnir þurfa að hafa með sér nesti fyrir tvo nestistíma og vera búin til að vera mikið úti Skráning og greiðsla í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar Kær kveðja, Félagsmiðstöðin Boran.
Hverjir eiga að fá umhverfisviðurkenningu í ár?Að venju mun bæjarstjórn veita viðurkenningu þeim sem skara fram úr í umhverfismálum í bæjarfélaginu, eftir tillögum frá umhverfis- og skipulagsnefnd.
Mætir í Vogana Dagana 12.– 16.ágúst verður haldið reiðnámskeið i Vogunum fyrir börn og unglinga, 7 ára og eldri.Kennsla verður kl 9 – 11 fyrir lengra komna,Kennsla verður kl 12 – 14 fyrir minna vanaUpplýsingar og skráning:Sigurlaug Anna sími: 891-8757Búnaður:Börnin fá allan almennan búnað tengdan útreiðum, ss, reiðhjálma, reiðtygi o.fl.
Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa frá 1.september næstkomandi, um er að ræða 100% starfshlutfall.Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar.