íbúaskrá 1. desember 2013

Vakin er athygli á að tilkynningar um breytingar á lögheimili þurfa að berast eigi síðar en föstudaginn 6. desember svo unnt sé að tryggja að einstaklingar séu rétt skráðir í íbúaskrá miðað við 1. desember þessa árs.  Æskilegt er að tilkynningar berist jafnt og þétt fyrstu vikuna í desember.  

Sérstök athygli er vakin á því að einstaklingar geta tilkynnt flutning í gegnum vefform á vef Þjóðskrár Íslands, skra.is.  Ef breyting á lögheimilisskráningu er tilkynnt rafrænt þá er hún skráð eigi síðar en næsta virkan dag.