Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir umsóknum um leiguíbúð sveitarfélagsins í Álfagerði.Um er að ræða einstaklingsíbúð.Skilyrði umsóknar er að umsækjandi sé 60 ára eða eldri, og hafi átt lögheimili í sveitarfélaginu næstliðin 3 ár eða hafi búið stóran hluta ævi sinnar í sveitarfélaginu en flutt í burtu.
Dagur félagasamtaka í Vogum verður haldinn laugardaginn 17.nóvember 2018 kl.13 – 15, í Tjarnarsal.Þar munu fulltrúar félagasamtaka í Vogum taka á móti gestum og gangandi, og kynna starfsemi félaganna í sveitarfélaginu.