Dagur félagasamtaka í Vogum.

 

Dagur félagasamtaka í Vogum verður haldinn laugardaginn 17. nóvember 2018 kl. 13 – 15, í Tjarnarsal.
Þar munu fulltrúar félagasamtaka í Vogum taka á móti gestum og gangandi, og kynna starfsemi félaganna í sveitarfélaginu.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér fjölbreytta starfsemi félaganna.
Veitingar í boði fyrir alla fjölskylduna.
Notum þetta tækifæri og kynnumst öflugri starfsemi frjálsra félagasamtaka í góðu samfélagi.

Við hlökkum til að sjá þig!

Félagasamtök í Sveitarfélaginu Vogum og Frístunda- og menningarnefnd.