Íbúð fyrir eldri borgara til leigu

Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir umsóknum um leiguíbúð sveitarfélagsins í Álfagerði.
Um er að ræða einstaklingsíbúð.
Skilyrði umsóknar er að umsækjandi sé 60 ára eða eldri, og hafi átt lögheimili í sveitarfélaginu næstliðin 3 ár eða hafi búið stóran hluta ævi sinnar í sveitarfélaginu en flutt í burtu.
Við mat á umsókn er tekið tillit til hversu lengi umsækjandi hefur átt lögheimili í sveitarfélaginu, aldurs, húsnæðisaðstæðna, þjónustuþörf og færni umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til 24. nóvember 2018, og skal umsóknum skilað á bæjarskrifstofurnar, Iðndal 2, eða með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is fyrir lok umsóknarfrests.
Íbúðin er laus frá og með 1. desember 2018.

Umsóknareyðublað hér