Á Íbúagátt er nú hægt að sjá greidda og ógreidda reikninga fyrir þjónustu Sveitarfélagsins Voga svosem Leikskóla- og Frístundagjöld, undir Gjöld.
Álagningarseðla með skiptingu gjalda er hægt að sjá undir fasteignagjöld.
Íbúagáttin hefur verið í stöðugri þróun síðan hún fór í loftið árið 2015 og hefur reynst vel við vinnslu umsókna um hina ýmsu þjónustu sveitarfélagsins.
Á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is er hlekkur á íbúagáttina, unnt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli.
Kveðja frá bæjarskrifstofu.
08. maí 2018