Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2018


Vertu til er vorið kallar á þig !

Vorið er komið og grundirnar gróa. Þá er ráð að taka til við vorverkin í garðinum og nánasta umhverfi.
Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga er sem fyrr haldin undir slagorðinu ,,Vertu til er vorið kallar á þig!”, en það vísar til þess að allir íbúar sveitarfélagsins taki höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfisvikan hefst laugardaginn 12. maí og endar þann 19. maí, þannig að það er rúmur tími til góðra verka.

• Hægt er að losa jarðveg og garðúrgang á jarðvegstipp á Grænuborgarsvæðinu. Ekki heimilt að henda öðrum úrgangi.
• Ruslapokar sem skildir eru eftir við lóðarmörk verða teknir hjá þeim sem þá þjónustu þurfa. Vinsamlegast gangið vel og snyrtilega frá pokum.(pokar með garðaúrgang)
• Íbúar á Vatnsleysuströnd eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu og óska eftir því að pokar verði hirtir.
• Gámur fyrir spilliefni s.s. rafgeyma er staðsettur á gámasvæðinu.
• Mjög mikilvægt er að flokka allt rusl, járnarusl sérstaklega. Einnig verður boðið uppá að fjarlægja járnarusl s.s. bílhræ eða annað sambærilegt. Hafa verðu samband við skrifstofu og biðja um að láta fjarlægja járnarusl.

Aukinn Opnunartími gámasvæðis Kölku við höfnina
Mánudag 17-19
Þriðjudag 17-19
Miðvikudag 17-19
Fimmtudag 17-19
Föstudag 17-19
Laugardag 12-16
Sunnudag 12-16