Á Íbúagátt er nú hægt að sjá greidda og ógreidda reikninga fyrir þjónustu Sveitarfélagsins Voga svosem Leikskóla- og Frístundagjöld, undir Gjöld. Álagningarseðla með skiptingu gjalda er hægt að sjá undir fasteignagjöld. Íbúagáttin hefur verið í stöðugri þróun síðan hún fór í loftið árið 2015 og hefur reynst vel við vinnslu umsókna um hina ýmsu þjónustu sveitarfélagsins. Á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is er hlekkur á íbúagáttina, unnt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Kveðja frá bæjarskrifstofu.