Eftir erfiðan vetur kom kærkomið vor sem hefur glatt okkur með fallegum dögum þó kaldir hafi verið. Íbúar Sveitarfélagsins Voga eru margir hverjir komnir á fullt skrið við að taka til hendinni við hús sín, lóðir og nærumhverfi. Næstu viku ætlum við að gera enn betur og taka höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið.
04. júní 2020