Vorverkin og umhverfisvika

Nú er sólin að hækka á lofti, snjóinn að leysa og hitinn að ná að yfirbuga frostið. Þá förum við að huga að vorverkum.

Undanfarin ár hefur verið sérstök umhverfisvika í Vogum á vordögum. Nú hefur verið ákveðið að umhverfisvikan hefjist laugardaginn 17. maí. Í ár verður sú nýbreytni að bænum verður skipt í þrjú hverfi, gult, rautt og grænt á sama hátt og á Fjölskyldudaginn. Vonir standa til þess að íbúar taki höndum saman um að hreinsa og fegra sitt nánasta umhverfi og hvetja hver annan til góðra verka. Vikan endar laugardaginn 24. maí, sama dag og Evróvisjónkeppnin fer fram og munu hverfin vafalaust gera eitthvað skemmtilegt saman í lok umhverfisvikunnar.

Gámasvæði Kölku við höfnina verður með rýmri opnunartíma og mun starfsfólk sveitarfélagsins verða á ferðinni og reiðubúið að aðstoða við að koma rusli og lífrænum úrgangi á gámasvæðið.

Opnunartími gámasvæðisins og nánari útfærsla umhverfisvikunnar verður auglýst þegar nær dregur.

Vakin er athygli á því að Heilbrigðisnefnd er heimilt að láta fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri að undangenginni viðvörun, svo sem með álímingarmiða með aðvörunarorðum. Starfsfólk sveitarfélagsins og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja verða á ferðinni næstu vikurnar og munu merkja númerslausa bíla og annað slíkt sem óprýði er að. Sem kunnugt er er hægt að skila bílum inn til endurvinnslu og fá 15.000 kr í skilagjald.

Jafnframt mega lóðarhafar sem ekki hafa sinnt frágangi lóða sinna og húss í samræmi við byggingareglugerð eða úthlutunarskilmála lóða, eiga von á bréfi með áminningu um að klára þau verkefni hið fyrsta.

Bærinn okkar er snyrtilegur og fallegur og við verðum öll að leggjast á eitt við að halda honum þannig. Við skulum leggja metnað okkar í að bærinn verði okkur öllum til sóma í sumar. Sveitarfélagið Vogar veitir árlega umhverfisverðlaun til þeirra sem best hafa staðið sig við fegrun umhverfis síns. Hver veit nema þitt hús verði tilnefnt í ár. 

Nánari upplýsingar um endurvinnslu og umhverfismál má finna á umhverfissíðunni.

Myndin er frá Hólagötu 2b sem fékk viðurkenningu umhverfisnefndar árið 2007.