Vorhátíð Stóru- Vogaskóla

Vorhátíð Stóru-Vogaskóla verður haldin í dag frá klukkan 16:00 og eitthvað frameftir degi. 

Boðið verður upp á grillaðar pylsur og svala. Fjórhjól verða á staðnum, bátar verða á tjörninni, og lögreglan býður upp á ástandsskoðun reiðhjóla, að ógleymdri hæfileikasýningu nemenda.

Þá verður farið í ýmsa skemmtilega útileiki.  Við hvetjum foreldra og starfsfólk til að mæta á hátíðina með börnunum og fagna með þeim lokum skólaárs.

Fjölmennum og höfum gaman saman !

Foreldrafélag Stóru- Vogaskóla.