VOGAVERK

Síðastliðna mánuði hefur Ziggy unnið að gerð sjónvarpsþátta sem nefndir eru VOGAVERK. Þættirnir eru gerðir fyrir áhorfendur á aldrinum 14-35 ára en vonandi hafa sem flestir gaman að.
Eins og nafnið ber með sér þá tengjast þættirnir Sveitarfélaginu Vogum.
Ziggy átti lengi heima þar og svo eru nokkuð mörg skot þaðan.
Sjónvarpsstöðin ÍNN hefur tekið þættina til sýninga og verða þeir sýndir klukkan hálf tíu (21.30)á föstudagskvöldum. Fyrsti þáttur verður sýndur föstudaginn 12. nóvember.

Sjá nánar hér : http://vimeo.com/16439663