Vogastrætó - ferðir falla niður í dag

Vegna vonskuveðurs falla ferðir Vogastrætó (Leið 87) niður í dag, athugað verður með ferð kl. 18:05 frá Gamla Pósthúsinu.

Tekið af heimasíðu Strætó.is:

Farþegar athugið: Búist er við vonskuveðri með samgöngutruflunum á landinu í dag, fyrst um landið sunnan- og vestanvert. Búast má við að flestar ef ekki allar ferðir til og frá Reykjavík muni raskast mikið eða hreinlega verða felldar niður. Einnig má búast við töluverðum truflunum á akstri áætlanabíla innan höfuðborgarsvæðisins og ef sú staða kemur upp, munum við reyna að halda öryggi umfram tímaáætlun.


Þökkum sýndan skilning og þolinmæði.  



Leið 55  FLugstöðin-Fjörður-Reykjavík): Ferðir  kl 11.55 til 16.42 falla niður. Athugað verður með ferð kl 17.42.

Leið 55 (Reykjavík-Fjörður-Flugstöð): Ferð frá Firði kl 12.55 fellur niður, ferðir frá Umferðarmiðstöð Reykjavík kl 14.23, 15.23 og 16.23 falla niður. Athugað verður með ferð kl. 17.23.