Vogabraut lokað á fimmtudag vegna malbikunar

Vogabraut frá mislægu gatnamótunum að gatnamótum Stapavegar-Vatnsleysuvegar verður lokað vegna malbikunar á fimmtudaginn frá kl. 7.30 og fram eftir kvöldi. Umferð verður beint um Vatnsleysustrandarveg.