Virkjun óskar eftir umsjónarmanni

 í fimm mánuði. Starfið felst í daglegri umsýslu í Virkjun, þjónusta, afgreiðsla, leiðbeiningar, tölvukunnátta,þrif, uppáhellingar og frágang. Viðkomandi þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum og einnig gæta fyllsta trúnaðar gagnvart persónuupplýsingum. Vinnutími er frá 08:00 til 16:00 virka daga. Starfsþjálfunarsamningur. Aðeins óskað eftir þeim sem nú þegar eru á atvinnuleysisskrá. Nánari upplýsingar í síma 773-3310 og starfsferilsskrár sendist á gunnar.h.gunnarsson@reykjanesbaer.is