Vinnukvöld Skógfells

Vinnukvöld verða hjá skógræktarfélaginu Skógfelli í júní öll miðvikudagskvöld  kl 20:00.
Fyrst ætlum við að hittast 6. júní  á Háabjalla og bera á plöntur.
13. júní verðum við  á ströndinni við vinnuskúr félagsins og gróðursetjum.
20. og 27. júni er svo ferðinni aftur heitið að Háabjalla og þá ætlum við að pota niður nokkrum hríslum.

Vinnukvöldin  er ánægjuleg samverustund þeirra sem gaman hafa af gróðri, ræktun og  útivist.
Með von um að sjá ykkur sem allra flest.          

Stjórnin