Vinnudagur meistaraflokks.

Meistaraflokkur Þróttar hélt vinnudag á nýja vellinum í gærkvöldi, málaðar voru línur

og sett upp girðing fyrir auglýsingaspjöld. Einnig var gamli völlurinn sleginn. Góð 

stemmning var og mættu 16 og tækluðu vinnudaginn.

Meistaraflokkurinn ætlar að hittast aftur á mánudagskvöldið næsta og leggja 

lokahönd á verkið. Allir velkomnir. Byrjum klukkan 20. 

Næsti leikur hjá strákunum er á föstudagskvöldið í Mosfellsbæ, byrjar hann klukkan 20. Mætum liði Hvíta 

Riddarans.