Vinningshafi jólahappdrætti Þróttar 2012

Nú á dögunum fór Knattspyrnudeild Þróttar og afhenti Jórunni Sigurmundsdóttir aðalvinninginn í jólahappdrætti 2012. Jórunn var að passa og eins og sést á myndinni þá vildi litli kútur ekki vera með á myndinni. Verðlaunin voru ekki af verri endanum eða gjafabréf með Wow Air. Var þetta sjötta árið í röð sem happdrættið var haldið. Okkur langar að þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum og einkaaðilum fyrir að gefa vinninga, án þeirra þá væri þetta ekki hægt. Vinningshlutfallið þetta árið var 20%. Einnig þökkum við öllum þeim sem keyptu miða og styrktu okkur. Þetta var sjötta árið í röð sem happdrættið fór fram og því er komin góð hefð fyrir þessu.

Við minnum alla á að fara yfir vinningaskrána því ennþá eru 14 ósóttir vinningar og hægt er að nálgast þá á skrifstofutíma eða senda mail á marteinn@throttur.net fyrir 15. mars.

Jórunn Sigurmundsdóttir með vinninginn