Vinavika Þróttar

Barna og unglingastarf Þróttar Vogum bjóða upp á vinaviku þar sem iðkendum Þróttar Vogum er leyfilegt að bjóða vin með sér frítt á æfingar daganna 16. janúar til 21. janúar.

Tilvalið fyrir börn og unglinga að prófa þær greinar sem í boði eru hjá Þrótti Vogum.

Júdóæfingar fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum.
Sundkrakkarnir okkar geta boðið vinum sínum í Sverðfiska hópnum með sér á æfingar.
Því miður geta börn í Flugfiskahóp og Krossfiskahóp ekki boðið vinum sínum með á æfingar vegna fjölda iðkenda þar fyrir.
Knattspyrnuæfingar eru í gangi alla vikuna hjá þrótti V, iðkendur geta boðið vinum sínum með á æfingar.

Við hvetjum alla til að taka þátt í þessari skemmtilegu viku og inná heimasíðu félagsins er að finna tímatöfluna og einnig er hægt að skrá iðkenda til leiks í afgreiðslu Vogabæjarhallar.