Vinátta í verki – söfnun



Um þessar mundir stendur yfir landssöfnunin „Vinátta í verki“ til stuðnings Grænlendingum vegna flóðbylgju sem skall á Vestur-Grænlandi nýverið. Fjöldi manns þurftu að yfirgefa heimili sín og nokkurra er saknað.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nýverið að hvetja íbúa sveitarfélagsins til að styðja þessa söfnun. Það má gera með því að leggja inn á reikning 0334-26-056200, kt. 450670-0499. Einnig er hægt að hringja í 907-2003 og leggja þannig til 2.500 krónur.