VINABALL BORUNNAR

Vinaball var haldið síðast liðið föstudagskvöld í Borunni. Undirbúningur vegna ballsins hófst snemma í síðustu viku og var Boruráðið með annan fótinn í félagsmiðstöðinni alla  viku vegna undirbúnings og fleira.

Við buðum Sandgerði og Garði á ballið ásamt því að félagsmiðstöðvaráð Gufunesbæjar kom á ballið og gisti síðan í félagsmiðstöðinni um nóttina. Þannig að þetta voru um 100 unglingar sem mættu á ballið og skemmtu sér vel saman.

Dj Joey D sá um að halda uppi fjörinu sem honum tókst alveg snilldar vel!!  Ballið tóks gríðarlega vel enda ekki við öðru að búast. Starfsfólk er gríðarlega ánægt með ballið og unglingana sem sóttu það. Þau voru öll til fyrirmyndar.

Myndir frá ballinu verða settar inná www.boran.is  á næstu dögum