Viltu vinna með unglingum? Félagsmiðstöðin Boran auglýsir eftir leiðbeinanda

Laus er til umsóknar staða leiðbeinanda í kvöldstarfi unglinga í félagsmiðstöðinni Borunni.
Félagsmiðstöðin býður upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára.
Um er að ræða ca tvö kvöld í viku.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning á faglegu tómstundastarfi fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára
• Leiðbeina unglingum í starfi
• Samráð og samvinna við unglinga og starfsfólk

Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Áhugi á að vinna með unglingum
• Frumkvæði, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja.
Umsóknir skulu sendast á stefan@vogar.is fyrir lok 31. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson í síma 440-6225.