Viltu gerast stuðningsfjölskylda?

Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir samstarfi við fjölskyldur sem eru reiðubúnar að taka reglubundið börn til dvalar á heimili sínu. Algengast er að barn dvelji hjá stuðningsfjölskyldu eina til tvær helgar í mánuði.

Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni stuðningsfjölskyldna eru að taka reglubundið á móti barni í dvöl og að leyfa barni að taka þátt í daglegu fjölskyldulífi. Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á heimili barnanna, veita börnunum tilbreytingu og stuðning auk þess að gefa þeim kost á auknum félagslegum tengslum. Reynslan hefur sýnt að stuðningsfjölskyldur vinna öflugt forvarnarstarf til að tryggja og viðhalda festu og öryggi í lífi þeirra barna sem til þeirra koma.

Hæfniskröfur
Góðir samskiptahæfileikar. Sjálfstæði í vinnubrögðum. Áhugi og reynsla af vinnu með börnum. Hreint sakavottorð og góðar heimilisaðstæður. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Thelma Björk Guðbjörnsdóttir í síma 420-7500 eða í tölvupósti á thelma@sandgerdi.is.