Vilt þú vinna með unglingum? Félagsmiðstöðin Boran

Laus er til umsóknar staða leiðbeinanda í kvöldstarfi unglinga í félagsmiðstöðinni Borunni. Félagsmiðstöðin býður upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára. Um tímavinnu er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning á faglegu tómstundastarfi fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára
• Leiðbeina unglingum í starfi
• Samráð og samvinna við unglinga og starfsfólk

Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Áhugi á að vinna með unglingum
• Frumkvæði, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsóknir skulu sendast á stefan@vogar.is fyrir 5.september. Nánari upplýsingar í síma 440-6224.
 

Frístunda- og menningarfulltrúi Voga