Vetraropnun - Upplýsingamiðstöð ferðamála Reykjanesbæ

Nú fer að líða að vetraropnun og tækifæri til að fara yfir sumarið. Sumarið hefur verið skemmtilegt, fjölbreytt og fræðandi.
Nú er okkar fyrsta sumri um það bil að ljúka hér í Duus húsum safnahúsi. Við erum einstaklega ánægð með góðar viðtökur bæði frá gestum, ferðamönnum og ekki síst ferðaþjónum.
Vetraropnun mun taka gildi þann 1. okt. næstkomandi og verður þá opið alla daga frá kl. 12-17.

Við viljum hvetja ykkur til að vera áfram í sambandi við okkur, segja okkur frá ykkar áherslum í haust og vetur svo við getum miðlað áfram til gesta.

Auglýsing (pdf)