Vetraráætlun strætó

Hér er hlekkur á Vetraráætlun Strætó á Suðurnesjum - gildir frá 16. ágúst 2015 
 
Vetraráætlun tekur gildi þann 16. ágúst 2015 á Suðurnesjum. Nýju tímatöflurnar á pdf koma á síðu S.S.S. á næstu misserum. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Leið 55
Mun aka Hringbraut í síðustu þremur ferðunum á kvöldin í átt til FLE, þ.e. í ferðum kl. 19:23 frá Umferðarmiðstöð, kl. 21:55 frá Firði og kl. 23:55 frá Firði.
Í þessum ferðum bætast því við biðstöðvarnar Hringbraut/Knattspyrnuvöllur, Hringbraut/Norðurtún og Hringbraut/Melteigur.

Biðstöðin FLE-Koma verður færð aðeins til á planinu fyrir utan FLE.

Leið 88
Ferðir bætast við kl. 15:28 á fimmtudögum og föstudögum og kl. 14:28 á föstudögum frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Einnig mun bætast við ferð kl. 14:55 frá Grindavík á föstudögum.

Leið 89
Biðstöðin „Þekkingarsetur Suðurnesja“ mun bætast við í Sandgerði á leið 89 í átt til Reykjanesbæjar.

Nánari upplýsingar á straeto.is og í síma 540 2700



Nemakort komin í sölu.

Nemakort fyrir nemendur með lögheimili á Suðurnesjum komin í sölu.  Nemakortin gilda innan svæðis á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðið.  Gildistími þeirra er ein önn.

Nemakortin kosta  82.000,- kr.,  sem leggist inn á reikning Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, nr. 0142-26-11546, kt. 640479-0279.

Senda þar afrit af kvittun vegna millifærslu á netfangið verslun@straeto.is, ásamt nafni, kennitölu, nafni skóla og mynd.  Kortin verða send á lögheimili nemanda.
 
Athygli er vakin á því að afgreiðsla kortanna getur  tekið 7-10 daga.  Upplýsingar um gjaldskrá og kaup er að finna á heimasíðu Strætó.
Nánari upplýsingar á straeto.is og í síma 540 2700


Nánar:

http://www.sss.is/…/vetraraaetlun-straeto-a-sudurnesjum-16-…
http://www.straeto.is/um-straeto/frettir/nr/870