Vertu til er vorið kallar á þig !

Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2009
Vorið er komið og grundirnar gróa. Þá er ráð að taka til við vorverkin í garðinum og nánasta umhverfi.
Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga er sem fyrr haldin undir slagorðinu ,,Vertu til er vorið kallar á þig!”, en það vísar til þess að allir íbúar sveitarfélagsins taki höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfisvikan hefst 1. maí og endar þann 9. maí, þannig að það er rúmur tími til góðra verka.

Til að skapa skemmtilega stemningu er bænum skipt í þrjú hverfi á sama hátt og á Fjölskyldudaginn. Metnaður og keppnisskap íbúanna mun án efa verða til þess að samkeppni skapast um hvaða hverfi stendur sig best.
Vikan endar laugardaginn 9. maí með grillveislu við íþrótta- og félagsmiðstöðina. Boðið verður upp á pylsur, en fólk getur að sjálfsögðu komið mat til að setja á grillið.
Gagnlegar upplýsingar.
Opnunartími gámasvæðis Kölku í umhverfisviku Sveitarfélagsins Voga
2. maí kl. 13:00-18:00
3. maí kl. 13:00-18:00
5. maí kl. 15:00-19:00
7. maí kl. 15:00-19:00
9. maí kl. 13:00-18:00

• Hægt er að nálgast mold í blómabeðin við Iðndal 9.
• Ruslapokar sem skildir eru eftir við lóðarmörk verða teknir hjá þeim sem þá þjónustu þurfa. Vinsamlegast gangið vel og snyrtilega frá pokum.
• Íbúar á Vatnsleysuströnd eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu og óska eftir því að pokar verði hirtir.
• Föstudag og laugardag 8. og 9. maí verður vörubíll með krana á ferðinni sem hirðir stærri hluti ef óskað er eftir því.
• Jarðvegsgámur er staðsettur við gámasvæðið.
• Gámur fyrir spilliefni s.s. rafgeyma er staðsettur á gámasvæðinu.
• Mjög mikilvægt er að flokka allt rusl, járnarusl sérstakega.