Vel heppnuð dagskrá Safnahelgar í Vogum

Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki sýnt sparihliðarnar síðastliðinn laugardag lét fólk það ekki á sig fá og tók þátt í áhugaverðri dagskrá Safnahelgar.

Á bókasafninu stóð Norræna félagið í Vogum fyrir sýningu á ýmsum munum sem tengjast hinum Norðurlöndunum og norrænu samstarfi. Margir áhugaverðir munir í eigu íbúa voru til sýnis. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir vísnasöngkona söng og lék nokkur lög frá Norðurlöndunum.

Í Álfagerði minntist Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar aldarafmælis rithöfundarins Jóns Dan Jónssonar, en hann fæddist einmitt á Vatnsleysuströnd.

Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru um helgina, ljósmyndarar voru þeir Sveinn V. Steingrímsson og Ragnar J. Henriksson.

Kærar þakkir fyrir komuna,

Sveitarfélagið Vogar, Lestrafélagið Baldur, Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar og Norræna félagið Vogum.

Fleiri myndir má skoða hér í myndasafninu okkar



Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir vísnasöngkona

 



Norrænir munir

 



Norrænir munir

 



Marta og Ivan í Norræna Félaginu tala við gesti á bókasafninu



Margt var um manninn í Álfagerði