Vel heppnaðir umhverfisdagar

Öll sveitarfélögin á Suðurnesjum héldu sameiginlega umhverfis- og hreinsunardaga í síðustu viku. Óhætt er að segja að átakið hafi heppnast vel. Hér í Vogunum var stríður straumur íbúa á móttökustöð Kölku báða dagana, margir nýttu sér því gjaldfrelsið meðan á átakinu stóð.
Árleg umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga verður haldin 12. til 21. maí nk. og verður nánari upplýsingum þar um dreift í hús á næstu dögum.