Vaxtarsamningur Suðurnesja auglýsir eftir styrkumsóknum

Auglýst er eftir styrkumsóknum í Vaxtarsamning Suðurnesja á grundvelli samnings um framlag til byggðaþróunar á Suðurnesjum 2014.

Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefni
feli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og verklagsreglum um úthlutun.

Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda. Skilgreining á styrkhæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að
finna á vefsíðu vaxtarsamningsins: vaxtarsamningur.sss.is.

Umsóknarfrestur
Mánudaginn 1. desember 2014, kl. 16:00.
Umsóknum skal skila á netfangið vaxtarsamningur@heklan.is.
Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir verkefnastjóri bjork@heklan.is, sími 420 3288.

Viðtalstímar verkefnastjóra
Verkefnastjóri Vaxtarsamnings Suðurnesja verður til viðtals fyrir umsækjendur á bæjarskrifstofum sveitarfélaganna sem hér segir:

Garður: Mánudagur 10. nóvember kl. 10:00 – 11:00.
Sandgerði: Mánudagur 10. nóvember kl. 13:00 – 14:00.
Grindavík: Þriðjudagur 11. nóvember kl. 13:00 – 14:00.
Vogar: Þriðjudagur 11. nóvember kl. 11:00 – 12:00.