Athugið að varðeldurinn sem verður föstudagskvöldið 17. ágúst verður í fjörunni við Stóru-Voga en ekki við endann á Hvammsgötu eins og auglýst var.
Varðeldurinn byrjar kl. 22:00.
Varðeldurinn er í umsjón Smábátafélagsins og mun trúbadorinn Heiður leiða sönginn. Sykurpúðar í boði fyrir foreldra til að grilla fyrir yngri kynslóðina.
Mynd tekin við varðeldinn í fyrra