Úthlutun úr Mennta-, menningar- og afrekssjóði

Úthlutað hefur verið árlegum styrkjum úr Mennta-, menningar- og afrekssjóði Sveitarfélagsins Voga. Veittur var peningastyrkur til þeirra þriggja nemenda sem náðu bestum árangri á grunnskólaprófi í Stóru-Vogaskóla s.l. vor, ásamt því sem veittir voru styrkir til þeirra nemenda sem luku námi á 2. ári framhaldsskóla og þeim sem luku stúdentsprófi úr framhaldsskóla á tilsettum tímum. Þá var Knattspyrnudeild Þróttar einnig veittur styrkur úr sjóðnum, en meistaraflokkur karla náði þeim glæsta árangri á nýliðinni leiktíð að komast upp um deild og munu því keppa í þriðju deild að ári.

Sveitarfélagið efndi til móttöku í Álfagerði þar sem viðurkenningarnar voru afhentar. Nemendur eða fulltrúar þeirra tóku við viðurkenningarskjölunum, en Páll Guðmundsson fyrirliði meistaraflokks karla veitti viðurkenningu knattspyrnudeildar viðtöku.

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar styrkirnir voru afhentir.

Ásgeir Eiríksson t.v. ásamt nemendum eða fulltrúum þeirra sem hlutu styrk.


Knattspyrnudeild Þróttar.