Úthlutun úr Afreksmannasjóði

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum þann 22. maí að veita tvo styrki úr Afreksmannasjóði Sveitarfélagsins Voga.

Hulda Hrönn Agnarsdóttir, sundkona og Ásgeir Örn Þórsson, júdómaður hljóta 50.000 kr. styrk hvort. Afhending fer fram á fundi bæjarstjórnar þann 5. júní næstkomandi í Tjarnarsal kl. 18.

Bæjarráð hvetur afreksmennina tvo, sem og aðra íþróttamenn í sveitarfélaginu til frekari dáða í framtíðinni.