Úthlutun byggingalóða í Sveitarfélaginu Vogum
Sveitarfélagið Vogar auglýsir lóðir til úthlutunar fyrir íbúðabyggingar. Um er að ræða s.k. miðsvæði, síðari áfanga. Í þessum áfanga verður úthlutað lóðum undir fjölbýlishús (2 hús með 6 íbúðum hvert), parhús (5) og einbýlishús (7). Lóðirnar verða tilbúnar til afhendingar í október 2018. Umsóknareyðublöð ásamt úthlutunarskilmálum og gjaldskrá er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.vogar.is
Umsóknarfrestur er til 1. september 2018, og skal umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt fylgigögnum skilað til skrifstofu sveitarfélagsins, hvort heldur er með rafrænum hætti (tölvupóstur, umsókn á heimasíðu) eða með því að póstsenda gögnin á Sveitarfélagið Voga, Iðndal 2, 190 Vogar. Séu fleiri en ein umsókn um hverja lóð verður dregið úr gildum umsóknum.
Skila skal greiðslumati með umsókn. Lágmarksupphæðir eru sem hér segir:
Einbýlishús: kr.40.280.000,- pr. lóð.
Parhús: kr.40.280.000,- pr. lóð.
Fjölbýlishús I og II: kr.134.400.000,-
Vogar eru staðsettir nokkurn veginn mitt á milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar. Í sveitarfélaginu búa nú um 1.280 íbúar. Megin áherslur atvinnulífsins eru á vettvangi matvælaframleiðslu og iðnaðar. Í Vogum er starfræktur heildstæður grunnskóli (1. – 10. bekkur), ásamt leikskóla. Sundlaug, íþróttahús og íþróttamannvirki eru einnig til staðar. Öflugt íþróttastarf er á vegum Ungmennafélagsins Þróttar, sveitarfélagið starfrækir einnig félagsstarf fyrir unglinga og eldri borgara.
Vogum, 4. júlí 2018,
Ásgeir Eiríksson
bæjarstjóri